Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Hvar er orkan fyrir Helguvík?

Helguvík

Græna netið leitar að raforku fyrir 360 þúsund tonna álver á Suðurnesjum – fundur á Sólon laugardag kl. 11. Þeir Sigmundur Einarsson jarðfræðingur, Dofri Hermannsson varaborgarfulltrúi og Ágúst Hafberg framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli eru málshefjendur á fundi Græna netsins um orkumál, þar sem leitað verður svara við áleitnum spurningum um orku fyrir áformuð álver á Suðvesturhorninu og fyrir norðan.

Fundurinn er haldinn á Sólon við Bankastræti í Reykjavík og hefst kl. 11 árdegis. Fundarstjóri verður Sigrún Pálsdóttir.

Fullgert á álver Norðuráls við Helguvík að geta framleitt 360 þúsund tonn áls á ári, heldur meira en ver Fjarðaáls í Reyðarfirði. Til þessa þarf 630 megavött (Kárahnjúkavirkjun: 690 MW), og er ýmsum spurningum ósvarað um þá orkuöflun. Þeir Sigmundur og Dofri eru meðal þeirra sem hafa efast um orkuöflun til framkvæmdanna en Norðurál á hinn bóginn birt á heimasíðu sinni yfirlit um ýmsa orkukosti sem til greina komi. Svipaðar spurningar eru uppi um áformaðar álversframkvæmdir við Húsavík. Áformað Helguvíkurálver er daglega í fréttum vegna þessara orkumála, suðvesturlínu og úrskurðar umhverfisráðherra, stöðugleikasamningsins, fjáröflunarvanda og atvinnustefnu.

Má því búast við fjörugum fundi á Sólon. Því er við að bæta að Mörður Árnason, formaður Græna netsins, hefur á bloggsíðu sinni boðið Björgvini G. Sigurðssyni alþingismanni sérstaklega á fundinn vegna stuðningsyfirlýsingar Björgvins við tillögu stjórnarandstæðinga á þingi gegn úrskurði umhverfisráðherra.

Allir velkomnir á Sólon, laugardag frá kl. 11.Stjórn Græna netsins


Græna netið

Græna netið

- félag jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina
Til að ganga í Græna netið og/eða skrá sig á póstlista sendið póst á
graenanetid@gmail.com
Vinsamlegast smellið á fyrirsögn til að fá upplýsingar um félagið.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 488

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband