Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Hvað eftir Kyoto?

Árni Finnsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir ræða um loftslagsvána, Kaupmannahafnarráðstefnuna í desember og aðgerðir á Íslandi á opnum fundi Græna netsins og SffR á miðvikudagskvöld

Þau Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands og Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingismaður og fyrrverandi umhverfisráðherra eru málshefjendur á sameiginlegum fundi Græna netsins og Samfylkingarfélagsins um loftslagsmálin á miðvikudagskvöldið, 25. nóvember. Fundarstjóri er Mörður Árnason, formaður Græna netsins. Fundurinn verður haldinn í húsum SffR á Hallveigarstíg 1, 2. hæð, hefst kl. 20.30 og lýkur um kl. 22.

Loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn hefst eftir rúmar þrjár vikur. Hún er sú síðasta undir merkjum Kyoto-samkomulagsins sem nær til ársloka 2012, og nú á að ná nýju samkomulagi um næsta tímabil. Miklar væntingar eru gerðar til ráðstefnunnar um raunverulegan árangur því horfur í loftslagsmálum versna sífellt, og margir fremstu fræðimenn og umhverfisstjórnmálamenn telja að það ráðist á næsta áratug hvort okkur sem nú lifum tekst að stemma stigu við ógninni.

Íslendingar hafa einnig hlutverki að gegna, sem þjóð meðal þjóða við sameiginlegar ákvarðanir, og einnig við að sinna skuldbindingum okkar og takast á hendur auknar skyldur – sem hérlendis falla saman við uppbygginguna eftir hrunið.

Um þessi mál ræða þau Árni og Þórunn á miðvikudagskvöld, en bæði ætla þau til Hafnar í næsta mánuði að fylgjast með ráðstefnunni.
Fróðlegur og skemmtilegur fundur í vændum, allir velkomnir á Hallveigarstíginn miðvikudag frá 20.30.

Stjórn Græna netsins


Nýtur náttúran vafans? - fundur með ráðherra fellur niður

Vegna veikinda verður því miður að fresta fundi Græna netsins og SffR með Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra sem vera átti í kvöld. Fundurinn verður haldinn síðar, líklega skömmu eftir áramót.

Eftir hálfan mánuð, miðvikudagskvöldið 25. nóvember, ætla félögin tvö að halda annan fund um umhverfismál – um loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn sem hefst í byrjun desember.

Græna netið, félag jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina

Netfang: graenanetid@gmail.com


Nýtur náttúran vafans? - samtal við umhverfisráðherra

SffR11112

Samfylkingarfélagið í Reykjavík og Græna netið boða til umræðufundar með Svandísi Svavarsdóttur,umhverfisráðherra, næstkomandi miðvikudagskvöld 11. nóvember. Fundurinn verðurhaldinn að Hallveigarstíg 1, húsið opnar kl. 20 og hefst samtalið kl. 20.30.

Mörður Árnasonræðir við ráðherra og spyr spurninga um áherslur ríkisstjórnarinnar íumhverfismálum. Meðal umræðuefna verður umhverfismat, verndun og nýtingauðlinda, virkjanir og loftslagsmál. Ráðherra svarar svo fyrirspurnumfundarmanna að viðtalinu loknu.

 Kaffi og kleinurog allir velkomnir! 


Græna netið

Græna netið

- félag jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina
Til að ganga í Græna netið og/eða skrá sig á póstlista sendið póst á
graenanetid@gmail.com
Vinsamlegast smellið á fyrirsögn til að fá upplýsingar um félagið.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband