Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Olíuhreinsistöð – nútímakukl á Vestfjörðum?

Halldór Halldórsson bæjarstjóri á Ísafirði, Dofri Hermannsson varaborgarfulltrúi og  Bergur Sigurðsson framkvæmdastjóri Landverndar eru málshefjendur á spjallfundi Græna netsins laugardagsmorguninn 1. mars um Olíuhreinsistöð – nútímakukl á Vestfjörðum?

 

Eftir fundi fyrir vestan um síðustu helgi og tillögur Framtíðarlandsins um atvinnuuppbyggingu á Vestfjörðum eru áformin um olíuhreinsistöð á Vestfjörðum í brennidepli. Dofri hefur skrifað um áformin hvassar greinar sem hafa vakið ýmis viðbrögð vestra, Halldór er svæðinu öllu kunnugur sem bæjarstjóri, er höfundur hugmyndanna um „stóriðjulausa Vestfirði“ en í seinni tíð hallur undir stöðvaráformin, og Bergur er nýkominn úr leiðangri til Noregs þar sem hann og Ómar Ragnarsson skoðuðu olíuhreinsistöðvar og nærleiggjka ndi byggðir.

 

Það má búast við góðum erindum og  fjörugum umræðum á fundi Græna netsins á laugardaginn – hann verður haldinn á veitingahúsinu Sólon í Bankastrætinu, efri hæð, og hefst kl. 11 árdegis. Allir velkomnir.

  

Enginn er verri þótt hann vökni

Magnús segir frá á ReykjafjalliGóð mæting var í vettvangsferð Græna netsins á Varmársvæðið í Mosfellsbæ á laugardag þrátt fyrir úrhellisrigningu. Tilgangur ferðarinnar var að fræðast um jarðhitasvæðið  í Reykjahverfi, skoða náttúruperlur á bökkum Varmár og líta yfir framkvæmdasvæðið í Helgafellslandi. Magnús Guðmundsson sagnfræðingur leiddi hópinn sem hóf för í  Reykjahverfi þar sem Guðmundur Jónsson sagði sögu kalkúnaræktar á Reykjabúinu. Eftir skemmtilega göngu upp í hlíðar Reykjafjalls undir leiðsögn Magnúsar var haldið til Hönnu Bjartmars en þar biðu hópsins ylur og indælar veitingar. Jónas Sigurðsson bæjarfulltrúi sagði þar gestum frá stöðu skipulagsmála í Mosfellsbæ áður en haldið var af stað að Reykjalundi þar sem Magnús skýrði frá sögu staðarins. Þaðan var haldið að fögru gljúfri Skammadalslækjar og niður að Álafossi.
Guðmundur á Reykjum segir frá ReykjabúinuÍ Álafosskvos beið Palli hnífasmiður eftir göngugörpum með ilmandi fiskisúpu. Undir borðum sagði Katrín Theódórsdóttir lögmaður frá Varmárdeilunni og fulltrúar Varmársamtakanna frá starfi samtakanna og markmiðum. Dagskránni lauk síðan með stuttri heimildamynd um lífið á Álafossi frá 1896-1970 sem Hildur Margrétardóttir og fleiri íbúar á svæðinu eru að vinna að.
Græna netið átti frumkvæði af þessari vel heppnuðu ferð í Mosfellsbæ sem þeirra fólk á svæðinu skipulagði og er vonandi að starf félagsins haldi áfram með sama dampi og hér er lýst.

Í gróðurhúsi Hönnu Bjartmars


Náttúruvernd í þéttbýli – vettvangsferð í Mosfellsbæ

Hverir í ReykjahverfiLaugardaginn 16. febrúar verður farið undir merkjum Græna netsins á Varmársvæðið í Mosfellsbæ. Safnast saman kl. 11 frá endastöð strætó við Reykjaveg. Gengið um hverasvæðið í Reykjahverfi og upp í hlíðar Reykjafells ef veður leyfir undir leiðsögn Magnúsar Guðmundssonar sagnfræðings. Eftir gönguna þiggur hópurinn hressingu í bústað Hönnu Bjartmars bæjarfulltrúa á bökkum Varmár. Þar verður skipulagsspjall Jónasar Sigurðssonar oddvita Samfylkingarinnar í bænum og þeir Sigurður Ásbjörnsson og Magnús Guðmundsson skýra út jarðfræðina. Gengið niður að dælustöð Orkuveitunnar og gegnum Reykjalundarskóg að gljúfri Skammadalslækjar og síðan í Álafosskvos þar sem Palli hnífasmiður býður fiskisúpu og Katrín lögmaður Theódórsdóttir talar um Varmárdeiluna. Heimsókninni lýkur um 15.30 hjá Hildi Margrétardóttur myndlistarmanni sem sýnir okkur glefsur úr kvikmynd um lífið á Álafossi fyrr á tímum.

Til að tryggja að allir fái örugglega sinn skammt af indælli fiskisúpu Palla hnífasmiðs biðjum við göngugarpa að skrá þátttöku hjá graenanetid@gmail.com

 Þetta verður mögnuð vettvangsferð – takið daginn frá og látið fiskisöguna fljúga. Reykvíkingar eru hvattir til að fara til Mosó á vistvænan hátt, með leið 15, sem fer frá Meistaravöllum kl. 10.04.

Hanna Bjartmars býr í Reykjaseli við Engjaveg Skammadalsmegin við Varmá á móts við Reykjabyggð. Bílastæði eru í grennd við endastöðina.

Stjórnin


Auður miðbæjarins - fundur um borgarskipulag

Miðbæjarskipulag Rvk- Græna netið fundar um skipulag, gömul hús og fagurt mannlíf í miðbæ Reykjavíkur
Þeir Jóhannes Kjarval arkitekt hjá Borgarskipulagi og Stefán Benediktsson fulltrúi  Samfylkingarinnar í skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar eru málshefjendur á spjallfundi Græna netsins nk. laugardagsmorgun um Auð miðbæjarins – skipulag í miðbæ Reykjavíkur, gömul hús og ný, mannlíf, verslun, umferð og íbúabyggð.
Fundurinn er haldinn á Sólon í Bankastrætinu og hefst kl. 11 árdegis.
Mætið vel á  áhugaverðan fund þar sem fagmenn fjalla um miðbæjarmálin og kveikja umræður um merkileg efni sem eru ofarlega á baugi þessar vikur.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Græna netið

Græna netið

- félag jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina
Til að ganga í Græna netið og/eða skrá sig á póstlista sendið póst á
graenanetid@gmail.com
Vinsamlegast smellið á fyrirsögn til að fá upplýsingar um félagið.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 503

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband