Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Umhverfismál

Náttúruvernd og mannréttindi - Hádegisfundur á Sólon 16. október

Screen Shot 2012-10-15 at 12.47.56

Innan fárra daga gefst landsmönnum sögulegt tækifæri til að greiða atkvæði um sex veigamikil atriði í nýrri stjórnarskrá. Nokkur umræða hefur skapast um það fyrirkomulag stjórnlagaráðs að koma ákvæðum um mannréttindi, náttúruvernd og náttúruauðlindir fyrir í einum og sama kaflanum. Til að skoða málið nánar hefur Græna netið fengið Láru Magnúsardóttur sagnfræðing til að fjalla um þær efasemdir sem hún hefur um þessa tengingu og Illuga Jökulsson fulltrúa í stjórnlagaráði til segja frá því hvað vakti fyrir ráðinu með þessari tilhögun.

 

Mordur_fundarstjori

Um fundarstjórn sér Mörður Árnason en hann á sæti í umhverfisnefnd Alþingis.

Fjölmennum á Sólon þriðjudaginn 16. október kl. 12.00-13.15.

ALLIR VELKOMNIR!

Minnum á þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá 20. október nk.

VINSAMLEGAST ÁFRAMSENDIÐ Á ÁHUGASAMA!

Áhugaverðir tenglar: Tillögur stjórnlagaráðs í kaflanum Mannréttindi og náttúra

33. grein Náttúra Íslands og umhverfi http://www.stjornlagarad.is/starfid/frumvarp/grein/item35319/

34. grein Náttúruauðlindir http://www.stjornlagarad.is/starfid/frumvarp/grein/item35320/

Náttúran í eigin rétti eftir Láru Magnúsardóttur http://stofnanir.hi.is/skagastrond/natturan_i_eigin_retti_stjornarskra_mannamali

 


Náttúruperlan Mývatn og jarðvarmavirkjun í Bjarnarflagi - ferðaáætlun

- Skoðunarferð Græna netsins 8.-10. júní 2012

Ferðaáætlun 8.-10. júní

Bjarnarflag Ómar Ragnarsson

Brottför frá BSÍ föstudaginn 8. júní kl. 13.00 Komið tilbaka sunnudaginn 10. júní kl. 22.00

1. dagur - föstudagur

Ekið sem leið liggur frá Reykjavík í Mývatnssveit. Hópurinn teygir úr sér og gæðir sér á heimatilbúnu nesti við Vatnsdalshóla og innan um arktískar plöntur í Lystigarði Akureyrar. Á leiðinni er gluggað í gögn sem segja til um áhrif virkjunar í Bjarnarflagi á lífríki Mývatns og Laxár frá Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun, lýðheilsufræðingum og jarðvísindamönnum. Komið i hús við Mývatn um kl. 20.00.

2. dagur - laugardagur

Hópurinn hittir Árna Einarsson, líffræðing og forstöðumann Náttúrurannsóknar-stöðvarinnar við Mývatn og gengur með honum um virkjunarsvæðið í Bjarnarflagi. Einnig að Grjótagjá og Helguvogi í Mývatni. Síðdegis liggur leið að virkjunarsvæðinu við Kröflu, Víti skoðað og gengið á Leirhnjúk. Komið í hús um kl. 18. Ef skyggni er gott er upplagt að ganga á Hverfjall um kvöldið.

3. dagur - sunnudagur

Á lokadegi beinum við sjónum að fuglalífi við Mývatn og Laxá. Hjördís Finnbogadóttir, kennari og fyrrum fréttamaður á RÚV, leiðir hópinn um svæðið í grennd við heimaslóðir sínar að Nónbjargi suðvestanmegin Mývatns. Á göngunni standa vonir til að við rekumst á flórgoða, himbrima, lóm, húsönd, straumönd og fleiri sjaldgæfar fuglategundir. Göngugörpum býðst að ganga á Vindbelgjarfjall. Um kl. 14.00 er lagt af stað tilbaka til Reykjavíkur og væntum við heimkomu eigi síðar en kl. 22.00.

Hagnýtar upplýsingar:

Ferðalangar nesta sig sjálfir. Við búum í húsi með eldunaraðstöðu en einnig eru góðir veitingastaðir við Mývatn og gerum við ráð fyrir að nýta okkur það. Við biðjum fólk að koma með góðan hlífðarfatnað og velsmurða gönguskó (gætu blotnað í fuglaskoðun) og skóbursta (hveraleir). Mikilvægt er að taka með vettlinga og tvenna sokka, auk svefnpoka og nestis og nestispoka. Það eykur gildi ferðarinnar að hafa sjónauka meðferðis.

Fargjald hefur lækkað þar sem farið verður á bílum og er það kr. 20 þúsund sem greiðast inn á reikning Græna netsins: Kt. 411107-1240 - 303-26-41110 Nánari upplýsingar um ferðina veitir Sigrún Pálsdóttir í síma 866 9376

Myndina á Ómar Ragnarsson. 


Virkjun gufuafls og náttúra Mývatns - Vettvangsferð 8.-10. júní

Krafla300Græna netið mun í sumar halda uppteknum hætti og skipuleggja ferðir um dýrmæt náttúrusvæði þar sem verið er að íhuga orkunýtingu. Fyrsta vettvangsferðin verður farin um jarðhitasvæðin í Bjarnarflagi og við Kröflu í samstarfi við Náttúruverndarsamtök Íslands dagana 8.-10. júní 2012. Tilgangur ferðarinnar er að fræðast um möguleg mengunaráhrif gufu frá jarðvarmavirkjunum á vatnabúskap í Mývatni og Laxá. Farið verður um jarðhitasvæðin í fylgd sérfróðra og fuglalíf, -sem á þessum tíma er í hvað mestum blóma, - skoðað með Hjördísi Finnbogadóttur fyrrverandi fréttamanni á RÚV og ábúanda á Nónbjargi við Mývatn. Hópurinn heimsækir Náttúrurannsóknarstöðina við Mývatn . Gert er ráð fyrir góðum göngum báða dagana svo sem á Hverfjall, um Bjarnarflag að Grjótagjá, einnig að Víti og upp á Leirhnjúk. Gengið verður eftir bökkum Laxár og upp á Vindbelgjarfjall.

Fargjald er kr. 31 500. Innifalin er svefnpokagisting með morgunmat að Eldá og ferðalag í rútu til og frá Reykjavík og innan svæðisins.

Skráning í ferðina fer fram í gegnum tölvupóst til - sigrun.pals@simnet.is eða - Dofra í síma 822 4504.

Vinsamlegast greiðið fargjald eigi síðar en 1. júní inn á reikning Græna netsins, kt. 411107-1240 - 303-26-41110 . Munið að fyrstur kemur fyrstur fær.


Hversu verðmætt er myrkrið? Fundur um stjörnuhimin og ljósmengun

- fundur Græna netsins á laugardaginn kemur kl. 17 í Golfskála Seltjarnarness.

Stjörnuhimin

Snævarr Guðmundsson landfræðingur og leiðsögumaður er gestur Græna netsins á fundi í Golfskálanum á Seltjarnarnesi um myrkurgæði og ljósmengun. Snævarr hefur kannað ljós og myrkur að næturlagi á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og komist að því meðal annars að ljósmengun í einstökum sveitarfélögum er mest í Kópavogi, sem er þeirra upplýstast – en myrkrið er hinsvegar mest á Seltjarnarnesi og Álftanesi. Á svæðinu öllu er næturbirta, og þar með hulinn næturhiminn – frá fjórum til sjö sinnum meiri en á Þórshöfn, þar sem enn er stjörnubjart þegar vel viðrar að nóttu.

Líklega er höfuðborgin með grannbæjum eitt af upplýstustu byggðarsvæðum jarðar miðað við höfðatölu, og ekkert undarlegt við að Íslendingar vilji hafa ljós í skammdeginu. Ljósmengun fylgja hinsvegar ýmsir ókostir, þeirra mestur sá að næturhiminn hverfur og stjörnur sjást ekki fyrren talsvert utan við miðbæina. Kynslóðir borgarbarna alast því upp án þess að njóta stjarnanna – og fyrir ferðamenn dregur úr aðdráttarafli Reykjavíkur sem ævintýraborgar myrkurs og norðurljósa.

Margt má hinsvegar gera til að draga úr mengun af ljósum án þess að valda óþægindum fyrir umferð, atvinnulíf og sálarástand íbúanna, og er reynt víða erlendis. Hér heima standa Borgnesingar fremstir í flokki við að vinna gegn ofnotkun ljósa í byggð. Fundur Græna netsins um verðmæti myrkursins hefst kl. 17, eftir sólsetur, í Golfskálanum á Seltjarnarnesi. Eftir fyrirlestur Snævars verður gengið út undir bert loft að líta á himinhnetti og borgarljós einsog veður leyfir. 

Sjá staðsetningu 
http://ja.is/kort/#x=355532&y=408817&z=7&q=Golfv%C3%B6llur%20Seltjarnarness

Sjá nánar: https://www.facebook.com/events/334373313254131

 ALLIR VELKOMNIR á myrkurfund Græna netsins í Golfskála Ness.

Græna netið, félag jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina 
graenanetid@gmail.com 
www.graenanetid.blog.is
Græna netið á Facebook


Græna netið heldur aðalfund 7. júlí

Aðalfundur Græna netsins, félags jafnaðarmanna um náttúruna, umhverfið og framtíðina, verður haldinn fimmtudaginn 7. júlí nk. klukkan 17.00 á Glætunni, bókakaffi, Laugavegi 19, 101 Reykjavík. Dagskrá aðalfundar: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
Fyrirspurnir sendist til graenanetid@gmail.com


Orkulindir og ákvörðunarvald - Hver er framtíðin?

Mikil tilfærsla á valdi er fyrirsjáanleg í tengslum við ákvarðanir um nýtingu orkulinda Íslands á næstunni. Hverjir ráðstafa auðlindinni? Hver er aðkoma almennings? Og í hverju felast þær breytingar sem nú eru í vændum? - eru spurningar sem Kristín Haraldsdóttir sérfræðingur við lagadeild HR og forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar mun leitast við að svara á fundi Græna netsins á SÓLON laugardaginn 16. apríl kl. 11.00-12.30.

Að mörgu þarf að gæta þegar kemur að því að ákveða hvernig ráðstafa skuli orkulindum þjóðarinnar. Langtímasjónarmið eins og náttúruvernd, orkuöryggi og jafnrétti kynslóðanna hafa um nokkurt skeið togast á við skammtímahagsmuni og pólitíska óráðdeild. Í dag eru teikn á lofti um að lagabreytinga sé að vænta og mun ræðumaður skýra fyrir áheyrendum í hverju þær felast.

Látið berast - Allir velkomnir!

Stjórnin

Græna netið, félag jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina
graenanetid@gmail.com
www.graenanetid.blog.is


Er Samfylkingin græn?

Á morgun laugardaginn 26. febrúar kl. 11-13 stendur Græna netið, félag jafnaðarmanna um náttúruna, umhverfið og framtíðina, fyrir fundi á Hressó um Samfylkinguna og grænu málin.

Frummælendur verða þau Þórunn Sveinbjarnardóttir, fv umhverfisráðherra og formaður þingflokks Samfylkingarinnar og Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar og óþreytandi baráttumaður fyrir náttúruvernd.
Fundarstjóri verður Dofri Hermannsson, formaður Græna netsins og fv framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar.

Spurt verður: Er Samfylkingin græn? Hvert er orðspor hennar í umhverfismálum? Hvað hefur hún gert vel og hvar hefur hún brugðist? Hvað réð ákvörðun þingflokksins um að styðja Kárahnjúkavirkjun? Samræmdist það stefnu flokksins? Er stefna flokksins ein og söm um allt land eða afstæð eftir því hvar á landinu hún er til umræðu? Hvaða hagsmunir ráða för? Kjördæmapot? Endurkjör? Eru flokkar öflugt verkfæri til að koma stefnu kjósenda í framkvæmd eða ef til vill einhvers konar ReMax lógó fyrir einyrkja í pólitík?

Þessar spurningar og ýmsar aðrar verða til umræðu á opinskáum og hressilegum fundi Græna netsins kl 11-13 á morgun laugardaginn á Kaffi Hressó.

Allir velkomnir.

Sjá Facebook viðburð hér http://www.facebook.com/event.php?eid=202113206465548


Helguvíkurálver - björgunarhringur eða myllusteinn?

 Fundur Græna netsins á Sólon Íslandus kl. 11-13 á morgun laugardaginn 6. nóvember. Framsögumenn: Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður og Dofri Hermannsson, formaður Græna netsins.  

  • Er Helguvíkurálverið það sem bjarga mun þjóðinni upp úr kreppunni og eyða atvinnuleysi á Suðurnesjum?
  • Hvað skapar álver mörg störf á MW?
  • Er næg orka til?
  • Hvaða náttúrusvæðum mun þurfa að fórna?
  • Þola orkufyrirtækin þá lántöku sem nauðsynleg er til að virkja?
  • Ef ekki, á hverjum lendir tjónið?
  • Eru aðrir möguleikar í stöðunni?
  • Hvað skapa þeir möguleikar mörg störf á MW?
  • Ef við ætlum að nýta jarðvarmaorku til atvinnuuppbyggingar, hvernig ættum við að gera það og hvað ættum við að varast?

 Þessar spurningar og margar aðrar á Sólon Íslandus á morgun.

Allir velkomnir.

 


Hafnarframkvæmdir í Helguvík - Yfirlýsing frá Græna netinu

Yfirlýsing frá stjórn Græna netsins, félags jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina.
Stjórn Græna netsins lýsir furðu á vilja 6 þingmanna Samfylkingarinnar til að setja 700 milljónir af almannafé í að byggja upp einkahöfn fyrir 360.000 tonna álver í Helguvík. Ljóst er sú fórn mun engu breyta um eftirfarandi staðreyndir:
• Orku vantar fyrir meira en helminginn af fyrirhuguðu álveri
• Orkufyrirtækin vantar fjármagn til virkjunar á þeirri orku sem til er
• Stór hluti þeirrar orku sem fyrirhugað er að virkja er bundin skipulagsvaldi sveitarfélaga sem vilja heldur að orkan sé nýtt til atvinnusköpunar í viðkomandi sveitarfélagi
• Ekki er sátt um legu SV línu t.a.m. hafa fulltrúar Ölfuss lýst því yfir að línan verði ekki lögð um lendur þess nema að hluti af orku Hengilsins fari til atvinnuuppbyggingar í sveitarfélaginu.
• Fengist fjármagn í virkjun þeirrar orku sem til er yrði það á mun hærri vöxtum en áformað var og því ljóst að orkufyrirtækin þurfa mun hærra verð fyrir orkuna en gert var ráð fyrir í upphafi
• Hærra orkuverð setur fjármögnun Norðuráls á álverinu í Helguvík í enn frekara uppnám sem þó var ærin fyrir

Stjórn Græna netsins skorar á sexmenningana að rifja upp samþykktir landsfundar Samfylkingarinnar frá 2009 t.d. kaflann „Efnahagsleg endurreisn“ http://www.samfylkingin.is/LinkClick.aspx?fileticket=2cUtg1a%2bLBg%3d&tabid=166
þar sem m.a. segir:
Endurreisnin verður að miðast við græn grunngildi sem fela í sér sjálfbæra nýtingu auðlinda til lands og sjávar og traustan grunn fyrir stöðugleika og varanlegar lausnir. Tími töfralausna er liðinn.
Einnig gæti kaflinn „Atvinna fyrir alla“ verið þeim holl upprifjun en hvergi er þar að finna orð um að nota skattfé almennings í að niðurgreiða vanhugsaðar töfralausnir. http://www.samfylkingin.is/LinkClick.aspx?fileticket=Ixu7jJbiGN4%3d&tabid=166
Þess má geta að þær 700 milljónir sem umræddir þingmenn Samfylkingarinnar vilja taka af almenningi til að niðurgreiða einkahöfn fyrir erlent álfyrirtæki er um það bil sama upphæð og Tækniþróunarsjóður fær á ári til að styðja við bakið á nýjum sprotafyrirtækjum.

Á síðasta ári varð Tækniþróunarsjóður að neita 80% umsókna um stuðning vegna skorts á fjármunum. Efling sjóðsins hefur lengi verið baráttumál Samfylkingarinnar enda vandfundin betri leið til að efla nýsköpun í atvinnulífinu, skapa fjölda nýrra starfa, auka verðmætasköpun og útflutning.
Atvinnuleysi á Suðurnesjum er flókið og alvarlegt mál sem hvorki á að hafa í flimtingum né gera sér pólítskan mat úr með tækifærismennsku. Þegar styðja á við bakið á atvinnuuppbyggingu með almannafé verður að gera kröfu um að verkefni séu arðbær, ferlið við mat á þeim sé gegnsætt og að allir hafi sömu möguleika á að njóta stuðnings. Efling Tækniþróunarsjóðs er dæmi um slíkar aðgerðir en vel má hugsa sér svæðisbundna útfærslu á slíkum aðgerðum.
700 milljónir af almannafé til niðurgreiðslu á einkahöfn í Helguvík er hins vegar augljóst dæmi um kjördæmapot, fyrirgreiðslupólitík og pólitísk hrossakaup.


Virkjunaráform í Skaftárhreppi - Haustferð 11.-12. september

Virkjanaaform Skaftarhreppi 2010Náttúruverndarfólk hefur nú ákveðið að blása til vettvangsferðar um mosavaxnar hraunbreiður og árbakka iðandi vatnsfalla í Skaftárhreppi. Það eru Græna netið, Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands sem standa að ferð 11.-12. september um fyrirhuguð virkjunarsvæði á vatnasviði Skaftár og þá sér í lagi virkjanir kenndar við Búland, Hólmsá og jafnvel Skál. Leiðsögumaður í ferðinni verður Sigmundur Einarsson jarðfræðingur.

Á laugardeginum 11. september verður horft til áhrifa af Kötluhlaupum m.a. við Hjörleifshöfða og farið yfir fyrirhugað virkjunarsvæði í Hólmsá. Á sunnudag 12. september verða skoðuð virkjunaráform við Búland og Skál. Áætluð mannvirki Búlandsvirkjunar teygja sig upp að Hólaskjóli þar sem við snæðum kvöldverð og gistum á laugardagskvöld. Þess má geta að þennan sama dag verður réttað í Skaftárrétt.

Ferðin er öllum opin og sendist skráning til: reynirsigur@gmail.com

Gjald fyrir rútu, gistingu og kvöldverð er kr. 16.900  og til að tryggja sér sæti þarf að greiða gjaldið inn á reikning Græna netsins fyrir 6. september.

Bankaupplýsingar og kennitala: 303-26-41110; 411107-1240
Nánari upplýsingar hjá Reyni S í síma 894 0250 (til 5. sept) og Sigrúnu P í síma 866 9376 (eftir 5. sept.)Stjórnin


Næsta síða »

Græna netið

Græna netið

- félag jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina
Til að ganga í Græna netið og/eða skrá sig á póstlista sendið póst á
graenanetid@gmail.com
Vinsamlegast smellið á fyrirsögn til að fá upplýsingar um félagið.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 486

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband